Hugtök í hlutbundinni hugbúnaðargerð

ensk-íslenskur orðalisti


Þetta eru bráðabirgðaniðurstöður orðanefndar Skýrslutæknifélags Íslands um heiti á hugtökum er tengjast hlutbundinni hugbúnaðargerð. Hafa ber í huga að heitin geta breyst og eru ábendingar um endurbætur vel þegnar.
Þessum orðalista var síðast breytt 16. júlí 1997.
Samheiti eru oftast gefin í virðingarröð orðanefndar.

ENSKA                     ÍSLENSKA

abstract                  hugrænn
abstract class            hugrænn klasi
abstract data type        hugrænt gagnatag
abstraction               útdráttur
access                    aðgangur
action                    skyndiaðgerð (í kviklíkani)
activity                  verknaður (í kviklíkani)
actor, actor object       gerandi
aggregation               samsafn
ancestor                  arfgjafi
association               tengsl
attribute                 eiginleiki, eigindi
base class                grunnklasi
behavior                  hegðun
binding                   binding, frumbinding
browser                   rápari, rápforrit
cardinality               fjöldatala
class                     klasi
class attribute           klasaeiginleiki, klasaeigindi
class cohesion            samfesta klasa
class data type           klasagagnatag
class operation           aðgerð á klasa
classification            flokkun
client                    biðlari
client/server             biðlaraþjónustu-
cohesion                  samfesta
component                 þáttur
concrete class            hlutrænn klasi
constraint                skorða
constructor               smiður
contract                  samningur
coupling                  samtenging
data flow                 gagnagangur, gagnaflæði (í gagnaleiðariti)
data flow diagram         gagnaleiðarit, gagnaflæðirit
data store                gagnageymsla (í gagnaleiðariti)
delegation                framsal
descendant                arfþegi
destructor                eyðir
direct instance           beint tilvik
disjoint constraint       sundurlæg skorða
dynamic binding           kvikleg binding, kvikbinding
dynamic model             kviklegt líkan, kviklíkan
dynamic typing            kvikleg tögun, kviktögun
encapsulation             hjúpun
event                     atburður, atvik (í kviklíkani)
event flow diagram        atburðaleiðarit, atburðaflæðirit
event script              atburðarit
event trace               atburðaslóð (í kviklíkani)
event trigger             atburðakveikja
extension                 viðauki
factoring                 þáttun
framework                 rammi
function                  fall
functional model          starfrænt líkan, starfsemislíkan
generalization            alhæfing
global variable           víðvær breyta
inclusion polymorphism    arfgeng fjölbreytni
information hiding        upplýsingahuld
inheritance               erfðir
inheritance cohesion      erfðasamfesta
inheritance coupling      erfðasamtenging
instance                  tilvik
instance variable         tilviksbreyta
interaction coupling      gagnvirk samtenging
join class                fjölerfðaklasi
local variable            staðvær breyta
message                   boð
method                    aðferð
method cohesion           aðferðarsamfesta
modularity                einingastig
monomorphic               óbreytinn, einmóta
monomorphism              óbreytni, einmótun
multiple inheritance      fjölerfðir
object                    hlutur, viðfang
object interaction        gagnvirkni hluta, gagnvirkni viðfanga
object interface          hlutarskil, viðfangsskil
object model              hlutalíkan, viðfangalíkan
object modeling           hlutalíkanagerð, viðfangalíkanagerð
          technique, OMT
object-oriented, OO       hlutbundinn, viðfanga-
operation                 aðgerð
operational polymorphism  virk fjölbreytni
overloading               fjölbinding
partition                 deild
pass by reference         senda með tilvísun
pass by value             senda með gildi
pattern                   mynstur
peer                      jafningi
persistence               varanleiki
persistent object         varanlegur hlutur, varanlegt viðfang
polymorphic               fjölbreytinn, fjölmóta
polymorphism              fjölbreytni, fjölmótun
postcondition             eftirskilyrði
precondition              forskilyrði
private                   lokaður, einka-
process                   ferli (í gagnaleiðariti)
protected                 verndaður
public                    notfrjáls, opinber
qualified association     sérgreind tengsl
qualifier                 sérgreinir
range type                spannartag
reference                 tilvísun
reference attribute       tilvísunareiginleiki
relation                  vensl
restriction               takmörkun
role                      hlutverk
scenario                  atburðarás
scope                     gildissvið
server                    þjónn, miðlari
shared variable           sameiginleg breyta
single inheritance        einerfðir
specialization            sérhæfing
standard data type        staðlað gagnatag
state                     staða, ástand
state diagram             stöðurit
static binding            kyrrleg binding, kyrrbinding
static typing             kyrrleg tögun, kyrrtögun
static variable           kyrrleg breyta, kyrrbreyta
strong typing             rammtögun
subclass                  undirklasi
subsystem                 undirkerfi
superclass                yfirklasi
transition                stöðuskipti
trigger                   kveikja
type                      tag
use case                  notkunardæmi
use case model            notkunarlíkan
weak typing               naumtögun