Orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands

(Tölvuorðanefnd)

Formaður:  Sigrún Helgadóttir  Netfang: sigrun.h@simnet.is
                                                         Heimasími: 567 7575  Farsími: 864 7575
Ritstjóri Tölvuorðasafns:  Stefán Briem. Sími: 552 1733  Netfang: stbr@simnet.is

4. útgáfa Tölvuorðasafns kom út um miðjan ágúst 2005
Endurskoðun Tölvuorðasafns er lokið og 4. útgáfa þess endurbætt komin út í bókarformi um miðjan ágúst 2005. Norrænt málráð veitti orðanefnd fjárstyrk til þessa verkefnis og í kjölfar þess réð orðanefndin Stefán Briem sem ritstjóra í hlutastarfi frá ársbyrjun 2003. Bæði er um að ræða lagfæringar á því sem fyrir var í Tölvuorðasafni og viðbætur. Upphaflega var eingöngu stefnt að endurbótum á rafrænni útgáfu Tölvuorðasafns og að endurbætt orðasafnið yrði fært inn í orðabanka Íslenskrar málstöðvar síðla hausts 2003. Fljótlega varð þó ljóst að sú tímasetning stæðist ekki. Þegar leið á verkið var ákveðið að nýja útgáfan yrði einnig gefin út á pappír og auk þess hafa orðið tafir á að nýr innsetningarbúnaður orðabankans verði tilbúinn. Vinnuskjal orðanefndar var öllum opið á þessum vef nefndarinnar meðan á verkinu stóð en er nú orðið úrelt þar sem langt er liðið síðan efnisöflun lauk. Því hefur netaðgangi að vinnuskjalinu verið lokað við útgáfu bókarinnar. Að svo stöddu er óljóst hvort eða hvenær 4. útgáfan verður sett inn í orðabankann. 

Pistlar frá orðanefnd
Orð vikunnar
Orðabanki Íslenskrar málstöðvar

Tölvuorðasafn er tekið saman af orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands. Það hefur áður verið gefið út í ritröð Íslenskrar málnefndar en útgefandi 4. útgáfunnar er Hið íslenska bókmenntafélag.
Netaðgangur er að 3. útgáfu Tölvuorðasafns ásamt mörgum öðrum íðorðasöfnum í orðabanka Íslenskrar málstöðvar


Orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands (Tölvuorðanefnd) tók saman efni í fyrstu útgáfu Tölvuorðasafns 1983 og hefur einnig séð um endurskoðun þess. Önnur útgáfa Tölvuorðasafns kom út árið 1986. Þriðja útgáfa kom út í rafrænu formi í orðabanka Íslenskrar málstöðvar þegar hann var opnaður 15. nóvember 1997 og í bók (453 bls.) í janúar 1998. Fjórða útgáfa kom út í bók (555 bls.) í ágúst 2005.

Orðanefndin hefur einnig tekið saman ritið Íslensk táknaheiti (50 bls.) en það kom út í janúar 2003 sem 2. smárit Íslenskrar málnefndar.

Í orðanefnd eiga sæti:


Skýrslutæknifélag Íslands var stofnað árið 1968. Aðild að félaginu geta átt stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar. Skýrslutæknifélagið er opinn félagsskapur, óháður stofnunum þjóðfélagsins eða hagsmunasamtökum.
Skýrslutæknifélagið er vettvangur umræðna og skoðanaskipta um upplýsingatækni í því skyni að gera veg hennar sem mestan og stuðla að skynsamlegri notkun hennar.
Skýrslutæknifélagið gefur út tímaritið Tölvumál. Útgáfa ritsins er nú að mestu rafræn á vef Skýrslutæknifélagsins. Í Tölvumálum birtast öðru hverju pistlar frá orðanefnd.

Íslensk málnefnd rekur Íslenska málstöð í samvinnu við Háskóla Íslands.

Síðast breytt 2. september 2005
Stefán Briem stbr@simnet.is