
Líforðasafn. Enskt-íslenskt, íslenskt-enskt. 1997.
Hálfdan Ómar Hálfdanarson og Þuríður Þorbjarnardóttir. Offsetfjölritun ehf,
Reykjavík.
Tölvupóstur
til ritstjóra Líforðasafns
Líforðasafnið er byggt á Ensk-íslenskri orðaskrá í líffræði sem Hálfdan Ómar Hálfdanarson tók saman og gaf út árið 1981. Sú orðaskrá hefur lengi verið ófáanleg.
Í safninu eru um 8000 flettur af hinum ýmsu sviðum líffræðinnar, meðal
annars dýrafræði, erfðafræði, fósturfræði, frumulíffræði,
grasafræði, lífeðlisfræði, lífefnafræði, ónæmisfræði, vistfræði og
þroskunarfræði. Í Ensk-íslenskri orðaskrá í líffræði
voru um 3300
flettur.
Líforðasafnið er ætlað öllum sem lesa á ensku
fræðilegan texta í líffræði og ætti að geta orðið öllum nemum á framhaldsskóla-
og
háskólastigi, þýðendum sem og ýmsum öðrum notadrjúgt hjálpartæki.
Höfundar Líforðasafns eru báðir líffræðingar og
hafa um árabil starfað við kennslu í menntaskólum, en hafa auk þess þýtt
kennslubækur
í líffræði. Hálfdan Ómar vann auk þess meðal annars að gerð Ensk-íslenskrar
orðabókar, Ensk-íslenskrar skólaorðabókar og
Íslensku alfræðiorðabókarinnar sem komu út hjá Orðabókadeild Arnar og
Örlygs á árunum 1984–1990.
Prentaða útgáfan er í handhægu broti og er 264
blaðsíður að stærð.
19. apríl 2005 Ágústa Þorbergsdóttir