Íslensk málstöð

ORÐABANKI ÍSLENSKRAR MÁLSTÖÐVAR

Íðorð í iðjuþjálfun hugtök og skýringar. Íslenska, enska. 1996. Vinnuhópur um íðorð í iðjuþjálfun tók saman. Þóra Leósdóttir o.fl. Iðjuþjálfafélag Íslands, Reykjavík.


 Tölvupóstur til vinnuhóps um íðorð í iðjuþjálfun
 

Íðorð í iðjuþjálfun


Í nóvember 1996 gaf Iðjuþjálfafélag Íslands út handbók sem ber heitið Íðorð í iðjuþjálfun. Handbókin hefur að geyma á annað hundrað
hugtök og skilgreiningar sem tilheyra fræðigreininni. Atriðisorðaskrá fylgir á íslensku og ensku. Verkið var unnið af sex iðjuþjálfum sem
mynduðu vinnuhóp um verkefni innan iðjuþjálfafélagsins.

Ástæða þess að lagt var út í þetta verkefni var tvíþætt. Í fyrsta lagi er mikil þörf fyrir samræmdan orðaforða á íslensku innan
fræðigreinarinnar. Iðjuþjálfun er enn ekki kennd á Íslandi og hafa allir íslenskir iðjuþjálfar numið erlendis. Þá skortir því mjög orðaforða á
eigin tungu og nota oft mismunandi orð yfir sömu atriði. Í öðru lagi er nauðsynlegt að flokka á kerfisbundinn hátt þá þætti sem iðjuþjálfun
beinist að til að skýra verksvið iðjuþjálfa. Hugtökin lýsa viðfangsefnum þeirra og eru útskýrð með tilliti til hvernig iðjuþjálfar nota þau
innan sinnar fræðigreinar. Með tilkomu þessarar handbókar er stigið mikilvægt skref í þróun iðjuþjálfunar á Íslandi.

Í vinnu sinni studdist starfshópurinn við bandarískan íðorðalista frá árinu 1994. Uppbygging íslensku útgáfunnar er þó töluvert frábrugðin
þeirri fyrirmynd þar sem í ljós kom að bandaríski listinn uppfyllti engan veginn þær kröfur sem gerðar eru til flokkunar fræðiorða.
Vinnuhópurinn naut aðstoðar og ráðgjafar málfræðinganna Baldurs Jónssonar og Veturliða Óskarssonar hjá Íslenskri málstöð.

Útgáfu handbókarinnar var fylgt úr hlaði með námskeiði á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember 1996. Námskeiðið sóttu 33
iðjuþjálfar, en það er um helmingur allra iðjuþjálfa á Íslandi.

Handbókina má nálgast hjá Iðjuþjálfafélagi Íslands. Einnig er hún til sölu hjá Bóksölu stúdenta.

Vinnuhóp um íðorð í iðjuþjálfun skipa iðjuþjálfarnir Guðrún Pálmadóttir, Kristjana Fenger, Rósa Hauksdóttir, Sigrún Garðarsdóttir, Snæfríður Þóra Egilson og Þóra Leósdóttir.

Guðrún Pálmadóttir
 

7. apríl 2005 Ágústa Þorbergsdóttir