
Stafsetningarorðabókin er hin opinbera réttritunarorðabók um
íslensku. Ritstjóri Dóra Hafsteinsdóttir. Bókin var samin í Íslenskri málstöð í
umboði Íslenskrar málnefndar skv. lögum nr. 2/1990.
Stafsetningarorðabókin bætir úr brýnni þörf. Bókin leitast við að
svara sem flestum spurningum sem almennir málnotendur spyrja um og varða rétta
stafsetningu, vandaða beygingu og meðferð orða.
Stafsetningarorðabókin sýnir alls um 73.000 orð. Jafnframt eru
birtar ýtarlegar íslenskar ritreglur, settar fram á aðgengilegan hátt með
fjölda dæma. Ritreglurnar byggjast á auglýsingum menntamálaráðuneytis um
stafsetningu og greinarmerkjasetningu.
Stafsetningarorðabókin geymir allan algengan íslenskan orðaforða
og að auki fjöldamörg mannanöfn og örnefni, einnig öll ríkjaheiti og
þjóðernisorð og síðast en ekki síst mikinn orðaforða úr helstu fræðigreinum.
Notkunardæmi fylgja fjölmörgum flettiorðum til glöggvunar og sýnd eru algeng
orðasambönd og rétt orðnotkun.
Allt frá útgáfu Réttritunarorðabókar
handa grunnskólum (1989, um 14.700 orð, ritstjóri Baldur Jónsson) stefndi
Íslensk málnefnd að útgáfu viðameiri stafsetningarorðabókar enda mátti ljóst
vera að þörf væri á stærri og ýtarlegri stafsetningarorðabók um íslensku á borð
við þær stafsetningarorðabækur sem gefnar eru út í nágrannalöndunum. Unnið var
samfellt að Stafsetningarorðabókinni í Íslenskri málstöð frá því snemma
árs 2002 í liðlega fjögur ár. Ritstjóri verksins var Dóra Hafsteinsdóttir
deildarstjóri og voru aðrir starfsmenn málstöðvarinnar henni til aðstoðar, m.a.
við framsetningu ritreglnanna. Baldur Jónsson hafði áður unnið að undirbúningi
nýrrar stafsetningarorðabókar og að vinnureglum um íslenska stafsetningu,
einkum á árunum 1996-1999, og naut verkefnið góðs af því.
JPV útgáfa gefur Stafsetningarorðabókina út. Nánar...