Verðlaun veitt í keppninni Nýyrði vantar!

Verðlaun í keppninni Nýyrði vantar voru veitt föstudaginn 26. janúar. Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir hlaut verðlaun fyrir mjög vel unnið verkefni en Sigurður Þór Salvarsson og Halldór Berg Harðarson fyrir nýyrðið tískuviti. Námsgagnastofnun og málræktarsvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum höfðu samstarf um keppnina sem var haldin í tengslum við dag íslenskrar tungu í fyrra. Alls bárust 218 svarskeyti og á annað þúsund nýyrðatillögur sem starfsmenn málræktarsviðs fóru yfir.